11.08.2011 12:08
Ólafsdalshappdrætti
Stjórn Ólafsdalsfélagsins vill þakka bæði þeim sem styrktu félagið með því að gefa vinninga og þeim sem keyptu miða í happdrættinu á Ólafsdalshátíðinni 7. ágúst síðastliðinn. Þetta er annað árið sem félagið stendur fyrir happdrætti á Ólafsdalshátíð og er ágóðanum varið í að bjóða upp á Leikhópinn Lottu fyrir yngstu kynslóðina og vönduð tónlistaratriði.
Vinningar á eftirtalin númer gengu ekki út þegar dregið var í happdrættinu;
49
175
176
203
276
Vinningshöfum er bent á að hafa samband við
Ingveldi Guðmundsdóttur í síma 893-7528 / 434-1528 eða senda tölvupóst á ing.gudm@gmail.com
Hér má svo sjá myndir frá Ólafsdalshátíðinni
02.08.2011 17:34
Ólafsdalshátíð
Rögnvaldssonar frá Ólafsdal.
að hafa með sér lausafé til að versla/taka þátt í happdrætti.
20.07.2011 21:41
Námskeið
Sushi, söl, geitaostur og torfhleðslur;
námskeið í Ólafsdal í ágúst og september
Ólafsdalsfélagið býður upp á áhugaverð námskeið sem munu fara fram í
Ólafsdal við Gilsfjörð og í nágrenni hans - í ágúst og september n.k.
Námskeiðin eru fjögur og fjalla ýmist um lífrænt ræktað grænmeti,
ostagerð, sushi/söl/þara eða torf- og grjóthleðslu. Í námskeiðunum er
kynning á hugmyndum Slowfoodhreyfingarinnar og á Ólafsdalsskólanum á
19. öld. Inn fléttast lífræni matjurtagarðurinn í Ólafsdal, hráefni
til ostagerðar úr nágrenninu (kýr, sauðfé og geitur), fjaran í
Tjaldanesi og torf/grjótgarðar og veggir sem hlaðnir voru á sínum tíma
í Ólafsdal. Meðal leiðbeinenda eru Dominique Pledel, Rúnar Marvinsson,
Jóhanna Þorvaldsdóttir, Sigríður Jörundsdóttir, Elsa Dórothea
Gísladóttir, Eggert Antonsson og Ari Jóhannesson.
Námskeiðin eru unnin í samvinnu við Vaxtarsamning Vesturlands,
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Dalabyggð og Reykhólahrepp,
Þörungaverksmiðjuna, Þjóðfræðisetur og Slowfood Reykjavík og
Matur-saga-menning.
Nánari upplýsingar hér; sjá NÁMSKEIÐ efst á síðunni. Skráning á
olafsdalur@gmail.com.


