20.04.2009 10:27

Málþing, aðalfundur og opið hús

Framundan er margt að gerast á vegum Ólafsdalsfélagsins.

Sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl verður aðalfundur félagsins haldin í Dalabúð, Búðardal og hefst hann klukkan 10:30.

Eftir hádegi sama dag verður málþing félagsins haldið á sama stað og ættu áhugamenn um sögu Ólafsdals og Dalasýslu ekki að láta sig vanta á það, enda vegleg dagskrá í boði. Dagskránna er hægt að sjá hér  Málþingið hefst klukkan 13:00

Sunnudaginn 26. apríl verður opið hús í Ólafsdal frá 13:00-16:00. Kjörið tækifæri til þess að fara í sunnudagsbíltúr með fjölskylduna og skoða þetta áhugaverða hús og umhverfi þess.
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 77859
Samtals gestir: 25235
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:33:49