01.09.2009 09:12
Bréfasafn Torfa
Í byrjun ágúst hóf undirrituð störf á vegum Ólafsdalsfélagsins við það að flokka og skrá stórt bréfasafn Torfa Bjarnasonar sem er að finna á Handritadeild Landsbókasafns Íslands. Um er að ræða 46 skjalaböggla með sendibréfum sem Torfi fékk send og má áætla að um 10-12 þúsund bréf séu í þessu safni. Hvert og eitt bréf er skráð eftir sendanda, dagsetningu og stað sem bréfið er sent frá auk þess sem ég leita að frekari upplýsingum um viðkomandi sendanda. Nú í dag er ég búin að skrá ríflega 3000 bréf ásamt því að setja þessi bréf í umbúðir sem munu passa vel upp á þessi bréf um ókomna tíð.
Þrátt fyrir að bréfasafnið sé stórt þá er ég sannfærð um að það vantar töluvert af bréfum inn í safnið og ef einhver þarna úti hefur vitneskju um að gögn frá Torfa sé að finna einhvers staðar út í bæ þá mætti sá hinn sami gjarnan hafa samband við mig (525-5669). Ánægjulegt væri að hafa þetta safn sem allra, allra heillegast en það er hafsjór af fróðleik um lífið í Ólafsdal, búnaðarsögu landsins, persónusögu Torfa og lengi, lengi mætti telja áfram.
Greinilegt er að Torfi hefur haft mikla persónutöfra og átt einstaklega gott með að fá fólk á band með sér til að efla íslenskan landbúnað. Skólasveinarnir fara t.a.m. heim fullir eldmóði og fara hamförum í jarðræktarbótum í sinni sveit. Bændur leita ráða um þetta og hitt varðandi búskapinn og vilja kaupa ljái, fólk leitar ráða vegna alls milli himins og jarðar, hvernig sé best staðið að flutningi til Vesturheims, hvort Torfi geti fundið vist fyrir viðkomandi o.s.frv. Virðing fyrir Torfa og störfum hans er ótvíræð.
Auk bréfasafnsins er svo skjalasafn Torfa á Handritadeild, þar er að finna gögn tengd skólanum, dagbækur Torfa, viðskiptabækur og ýmislegt annað tengt félögum sem Torfi kom að.

Skrifað af Sigríður Hjördís Jörundsdóttir
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 77859
Samtals gestir: 25235
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:33:49