05.08.2010 13:41

Ólafsdalshátíð 2010

ÓLAFSDALSHÁTÍÐ 8. ágúst 2010

130 ár frá stofnun fyrsta búnaðarskóla á Íslandi ókeypis aðgangur og skemmtiatriði

 

DAGSKRÁ

11.00

Undanfari hátíðar.

Gönguferð frá Ólafsdalshúsinu og inn í Hvarfsdal og Draugaskot undir leiðsögn Kristjáns Inga  Arnarssonar í Stórholti. Fremur auðveld ganga.

----

13.00-14.00

Ólafsdalur, frumkvöðlasetur 21. aldar.

Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins.

 

Ávarp:  Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

 

Undirritun samnings um Ólafsdal.

 

Söngskemmtun: Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson.

 

14.00-17.00
ÓLAFSDALSMARKAÐUR

MS í Búðardal býður ostasmakk með aðalbláberjum úr Reykhólasveit - kræklingur frá Nesskel - grænmeti úr matjurtagarðinum í Ólafsdal - ís frá Erpsstöðum - handverksmarkaður - afurðir úr hráefni frá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum - kaffi, kleinur og safi í boði Ólafsdalsfélagsins  -

Dalaleir: leirlistakonan Sigríður Erla - hvannalamb frá Ytri-Fagradal o.fl.

 

14.15

"Í spor jarðyrkjumannsins Torfa":

stutt söguganga með Bjarna Guðmundssyni, prófessor á Hvanneyri.

 

15.00

Leikhópurinn Lotta sýnir barnaleikritið Hans klaufa sem er í frægðarför um landið.  Sýningin tekur tæpa klukkustund.

 

13.00-17.00

Afmælissýningin "Ólafsdalsskólinn 1880-1907" á 1. hæð Ólafsdalshússins.

Listsýningin "Dalir og Hólar - ferðateikningar" á 2. hæð Ólafsdalshússins.

 

Ólafsdalshappdrætti til styrktar félaginu (miðaverð 500 kr).

 

hestar teymdir undir börnum - önnur húsdýr - slegið með orfi og ljá

 

Kaffihlaðborð á Skriðulandi kl. 13.00-23.30

 

Athugið: netsamband er enn stopult í Ólafsdal og því eru gestir beðnir um að hafa með sér lausafé hafi þeir hug á að versla á markaði eða taka þátt í Ólafsdalshappdrætti.

 

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 77859
Samtals gestir: 25235
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:33:49