Gestabók
5.9.2010 kl. 21:34
Blekbyttuóhappið
Móðurafi minn Páll Sigurðsson frá Borgarfirði eystra var nemandi 1904 og uppdráttur eftir hann af húsinu í Ólafsdal er á sýningunni. Kvöldið áður en hann átti að skila þessari teikningu, sem lá fullbúin á borðinu hans, varð það óhapp að blekbytta fór um koll og blekið rann yfir teikninguna sem við það varð ónýt. Hann sat uppi alla nóttina og endurvann teikninguna sem eins og fyrr segir má sjá á sýningunni.
Kær kveðja
Áslaug
Áslaug Ólafsdóttir
13.6.2010 kl. 15:25
Bók Játvarðar Jökuls
Ég mæli með bók Játvarðar Jökuls um Ólafsdal. Fékk hana lánaða á sínum tíma hjá vinkonu minni Sigurbjörgu Sigurvinsdóttur fæddri 1902 og ólst upp í Ólafsdal. Foreldrar hennar Sigurvin og Katrín voru vinnufólk hjá Torfa og Guðlaugu.
Jónína Óskarsdóttir
6.8.2009 kl. 22:56
Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafsdalsskóla og Nemendatal Ólafsdalsskóla
Minni áhugasama á að faðir minn, Játvarður Jökull Júlíusson skráði sögu Torfa og skólans og kom hún út 1986. Bókin kom út hjá Búnaðarfélagi Íslands og enn eru til nokkur eintök þar.Kær kveðja, María.
María Játvarðardóttir
21.6.2009 kl. 14:42
Frábært framtak!
Þakka fyrir þetta frábæra framtak. Hér eru margar myndir sem ég hef aldrei séð áður, en þó átti faðir minn, Ásgeir Markússon, sem ólst upp á staðnum, talvert af myndum þaðan.
Hlakka til að hitta frændfólk mitt og velunnara staðarins á hátíðinni í sumar.
Sigurður Ingi Ásgeirsson
Sigurður Ingi Ásgeirsson
6.6.2009 kl. 21:27
flott vefsíðan
afskaplega gaman að finna vefsíðu um Ólafsdalinn, sem mér þykir svo vænt um. það er satt að ég er barnabarnabarnabarn Guðlaugar og Torfa og gaman að sjá myndirnar. Ekki vissi ég af þessari síðu. Hef nokkrum sinnum komið í Ólafsdal og mér finnst það svo gaman.
Hólmfríður Ásta, afkomandi
21.3.2009 kl. 22:42
Rótfesta ættarlauka
Ólafsdalsnefnd til hamingju með vefinn og allt framtakið!
Stefni á 23 apríl og til í tuskið.
Það er trú mín að stjórn Ólafsdalsfélagsins eigi auðveldast með að fá fyrrum ábúendur, niðja þeirra og aðra sérvitringa um sögu landbúnaðarframfara til að leggja hönd á PLÓGINN með henni - án mikils tilkostnaðar. Einnig má telja nokkuð víst að þeir nemendur Menntaskólans við Sund sem voru virkir í að mæta í Ólafsdal á dögum skólaselsins láti sér annt um staðinn og séu tilbúnir að LJÁ félaginu lið. Ekki má gleyma afkomendum skólapilta Torfa Bjarnasonar sem eflaust vilja votta sögu forfeðra og Ólafsdal virðingu sína.
Að vinna hjá Torfa
Á Flateyri á æskuárum tengdapabba (sem nú er 78 ára) var það kallað að vinna hjá Torfa þegar verk var innt af hendi með sjálfboðavinnu.
Þess ber að geta að vefnaður og sögusvið ættarsögu okkar systkina á upphaf sitt í Ólafsdal.
Rómantík í Ólafsdal:
Pabbi og mamma felldu hugi saman í Ólafsdal
Afi og amma í móðurætt felldu hugi saman í Ólafsdal
Afi og amma í föðurætt felldu hugi saman í Ólafsdal
Tengsl forfeðra og formæðra við Guðlaugu og Torfa:
Dóttir ábúenda og afadrengur Guðlaugar og Torfa
Ábúendur og fyrrum vinnuhjú Guðlaugar og Torfa
Dóttir og skólapiltur Guðlaugar og Torfa
Þessu til viðbótar vil ég geta þess (enn og aftur) að ég er afar stolt af því að vera fædd í Ólafsdal á afmælisdegi Torfa langafa. Ekki er ég síður hreykin af afa Rögnvaldi og ömmu Sigríði í móðurætt og þeirra niðjum fyrir að virða sögu húss og nágrennis. Afi og amma bjuggu allan sinn búskap í Ólafsdal og leituðust við að halda öllu til haga frá dögum Torfa og Guðlaugar.
Minningar um samverustundir með samferðafólki og einstök atvik gefa tengslunum við sögusviðið án efa hvað dýpsta merkingu. Það sama var uppi á teningnum á Ólafsdalsdeginum sl. sumar. Þar voru ættingjar hvert sem litið var. Það var virkilega ánægjuleg upplifun. Þrautseigir nefndarmenn eiga hrós skilið fyrir ánægjulegt tilefni og upplifun. Ekki var síður dýrmætt að fá leiðsögn fyrrum ábúenda.
Ég hvet alla velunnara Ólafsdals til virkni og láta sig ekki vanta þann 23. apríl ásamt því að mæta til leiks á Ólafsdalsdaginn þann 9. ágúst nk. Tengjumst Ólafsdal í gegnum upplifun og ljóslifandi frásögn. Vitjum rótanna!
Við Ólafsdalsnefndina vil ég segja eftirfarandi: Ég er meira gefin fyrir rjóma heldur en undanrennu og er því ekki til í að bera steina í tröðina en líst öllu betu
Áslaug Guðmundsdóttir
19.3.2009 kl. 23:09
Eins og talað út úr mínu hjarta!
Kæri Ásgeir. Er þér svo sammála, ég hef lengi verið undrandi og leið yfir skeytingarleysi um þessi verðmæti í okkar sögu sem ekki hafa fengið þá virðingu sem þau vissulega verðskulda. En nú er greinilega verið að gera bót á, fagna því mjög. Takk Rögnvaldur og þið hin sem lögðuð af stað í þetta ferðalag.
Kær kveðja. Auður, dóttir Guðlaugar Torfadóttur, Torfa Markússonar, Torfasonar, Bjarnasonar
Auður Axelsdóttir
30.1.2009 kl. 23:51
Langafi minn
Það gleður mig að það sé til fólk sem leggur sig fram um að vilja, halda í og varðveita sögu þess merka manns. Ég hef með höndum litlar upplýsingar um afkomu bræðra hanns Lárusar og þá sérlega Aðalbjarts en ég hef hitt sonar son hanns hér í U.S.A.
Með kveðju,
Ásgeir Ásgeirsson, Torfasonar,Bjarnasonar.
Ásgeir Ásgeirsson


